Project Description

Útkall - Í hamfarasjó

Útkall
– Á ögurstundu

Höfundur: Óttar Sveinsson
Útgáfurár: 2020
Bls: 234

Bók númer: 27

Þegar jörð skelfur, eldstrókar rísa með hvellum og drunum og fimm þúsund manns eru í stórhættu við upphaf eldgossins á Heimaey siglir Gjafar VE 300, lítill loðnubátur, út úr Friðarhöfn með 430manns +++ Þrengslin um borð eru gríðarleg +++ Þremur vikum síðar lendir áhöfnin ímannskaðaveðri við leit að fimm Íslendingum og fimm Færeyingum í gúmbjörgunarbátum sem saknað er á miðju Atlantshafi +++ Réttum mánuði eftir að eldgosið hófst strandar Gjafar í foráttubrimi fyrir utan Grindavík +++ Skipverjar berjast upp á líf og dauða meðan hugrakkir félagar í Björgunarsveitinni Þorbirni reyna að bjarga þeim.Hinn farsæli útgerðarmaður og vélstjóri Theodór Ólafsson lendir þarna í sínum þriðja skipskaða +++ Skipverjar og björgunarmenn segja frá hetjulegri baráttu +++ Árið1984 lenda Theodór og 14 manna áhöfn hans á Sæbjörgu VE 56 aftur í stórkostlegri lífshættu þegar hún verður vélarvana í óveðri við Hornafjörð+++ Báturinn nálgast hratt ógnarlegt brimið í klettunum og stórgrýtinu á Stokksnesi og Hafnartanga áður en hann strandar +++ Björgunarsveitarmenn á Höfn lýsa ótta sínum um að öll áhöfnin kynni að farast og stórkostlegri framgöngu við björgunarstörf Útkallsbækur Óttars Sveinssonar hafa á hverju ári frá 1994 verið eitthvert vinsælasta lesefni Íslendinga og þær hafa verið gefnar út víða um heim. Í þessum hörkuspennandi bókum gleyma lesendur sér í frásögnum þar sem höfundurinn og söguhetjurnar sjálfar lýsa sönnum atburðum úr íslenskum raunveruleika
Útgáfuár 2020